Fara í efni

Sumaráætlun innanbæjarstrætó tekur gildi 8. júní

05.06.2026 Fréttir

Sumaráætlun strætó á Egilsstöðum og í Fellabæ tekur gildi næsta mánudag, 8. júní.

Tímatöflur á stoppistöðvum hafa verið uppfærðar og innihalda nú einnig kort af akstursleiðum til að auðvelda farþegum að skipuleggja ferðir sínar.

Akstursleið strætó í Fellabæ mun taka breytingum í sumar vegna gatnaframkvæmda. Nánari upplýsingar um þær breytingar verða kynntar síðar.

Íbúar eru hvattir til að nýta sér almenningssamgöngur sem ferðamáta en þjónustan er gjaldfrjáls.

Sumaráætlun innanbæjarstrætó tekur gildi 8. júní
Getum við bætt efni þessarar síðu?