Fara í efni

Sumarlesturinn hafinn á Bókasafni Múlaþings

02.06.2026 Fréttir

Sumarlesturinn 2026 er hafinn á öllum starfsstöðvum Bókasafns Múlaþings. Í ár slást þátttakendur í för með Gúnda geithafri sem þarf hjálp við að finna góða bithaga.

Sumarlesturinn er árlegt átak sem miðar að því að efla lestrargleði 6-12 ára barna yfir sumartímann og skapa jákvæða upplifun í kringum lestur og bókasöfn. Þátttakendur fá sérstakt vegabréf á næsta bókasafni og safna svo stimplum og límmiðum eftir því sem lestrinum miðar áfram yfir sumarið. Auk þess fá lesendur þrautablöð og sérstaka happamiða og geta unnið skemmtilega vinninga.

Í kringum leikinn hefur mynd- og rithöfundurinn Blær Guðmundsdóttir skapað nýjan og skemmtilegan ævintýraheim þar sem Gúndi geithafur leiðir krakkana í gegnum átakið. Gúndi þarf hjálp við að finna grænt beitiland og geta þátttakendur hjálpað honum með því að lesa sem mest.

Sumarlesturinn er samstarfsverkefni fjölmargra bókasafna, stofnana og félagasamtaka um allt land. Undirbúningur verkefnisins var í höndum starfsfólks Borgarbókasafnsins, Bókasafns Kópavogs og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.

Sem fyrr segir er búið að opna fyrir skráningu í sumarlesturinn á öllum þremur starfsstöðvum Bókasafns Múlaþings en hér eru nánari upplýsingar um opnunartíma safnanna í sumar.

Sumarlesturinn hafinn á Bókasafni Múlaþings
Getum við bætt efni þessarar síðu?