Fara í efni

Sumarleyfi sveitarstjórnar og lokun bæjarskrifstofa Múlaþings

30.06.2021 Fréttir

Fyrir fundi sveitarstjórnar þann, 18. maí 2021, var samþykkt að sumarleyfi sveitarstjórnar verði frá fundi þess 9. júní 2021 og til og með 6. ágúst 2021. Byggðaráð mun fara með fullnaðarafgreiðsluheimild mála þann tíma, sbr. 32. gr. samþykkta um stjórn Múlaþings. Fyrsti fundur sveitarstjórnar að afloknu sumarleyfi verður haldinn 18. ágúst.

Á fundinum var jafnframt samþykkt að sumarlokun skrifstofa sveitarfélagsins verði:
Á Borgarfirði frá og með 1. júlí og til og með 30. júlí.
Á Djúpavogi frá og með 1. júlí og til og með 30. júlí.
Á Seyðisfirði frá og með 1. júlí og til og með 31. júlí. ATH af óviðráðanlegum orsökum opnar skrifstofan á Seyðisfirði ekki fyrr en 6. ágúst.
Á Egilsstöðum frá og með 19. júlí og til og með 30. júlí.

 

Sumarleyfi sveitarstjórnar og lokun bæjarskrifstofa Múlaþings
Getum við bætt efni þessarar síðu?