Fara í efni

Sumarlokun skrifstofa Múlaþings

20.06.2023 Fréttir

Vegna sumarfría starfsfólks verða skrifstofur Múlaþings lokaðar í júlí sem hér segir:

Á Borgarfirði, Seyðisfirði og Djúpavogi frá og með mánudeginum 3. júlí til og með föstudeginum 28. júlí.
Á Egilsstöðum frá og með mánudeginum 17. júlí til og með föstudeginum 28. júlí.

Sími sveitarfélagsins, 4 700 700, verður opinn þrátt fyrir lokun skrifstofanna milli klukkan 8.00 og 15.45 nema föstudaga frá klukkan 8.00 til 13.30.

Á heimasíðu Múlaþings – www.mulathing.is – má finna upplýsingar um þjónustu sveitarfélagsins, reglur, gjaldskrár og umsóknarform.

 

Sumarlokun skrifstofa Múlaþings
Getum við bætt efni þessarar síðu?