Fara í efni

Sumaropnun á skrifstofum Múlaþings 2026

12.06.2026 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Vegna sumarleyfa verður opnunartími á skrifstofu Múlaþings á Egilsstöðum styttur þannig að frá og með 15. júní til og með 14. ágúst 2026 verður opið frá klukkan 9:00-15:00 nema á föstudögum klukkan 9:00-13:30.

Í júlí verða skrifstofurnar lokaðar sem hér segir:

  • Á Borgarfirði eystra, Seyðisfirði og Djúpavogi frá og með mánudeginum 6. júlí til og með föstudeginum 31. júlí 2026.
  • Á Egilsstöðum frá og með mánudeginum 20. júlí til og með föstudeginum 31. júlí 2026.

Sími sveitarfélagsins 4 700 700 verður opinn þrátt fyrir lokun skrifstofanna á milli klukkan 9:00 og 15:00 nema föstudaga frá klukkan 9:00 til 13:30.

Á heimasíðu Múlaþings www.mulathing.is má finna upplýsingar um þjónustu sveitarfélagsins, reglur, gjaldskrár, umsóknarform og fleira.

Sumaropnun á skrifstofum Múlaþings 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?