Fara í efni

Sumarsýning Sláturhússins: Melancholia

15.06.2026 Fréttir

Sumarsýning Sláturhússins menningarmiðstöðvar, Melancholia, verður opnuð á þjóðarhátíðardaginn, 17. júní, klukkan 16:00. Þar sýnir Wiola Ujazdowska fjölbreytt verk, svo sem innsetningar, keramík skúlptúra, vídeóverk og málverk

Wiola Ujazdowska er pólsk-íslensk myndlistarkona og leikmyndahönnuður með doktorsgráðu frá Listaháskólanum í Gdansk. Verk eftir Wiolu hafa m.a. verið sýnd á Listasafni Íslands, á Listahátíð í Reykjavík, í Miðstöð samtímalistar í Torun og í Palais de Tokyo í París. Þá hefur Wiola hannað leikmyndir fyrir Borgarleikhúsið í Reykjavík og Schwere Reiter í München og unnið með Theater X10 í Prag í Tékklandi. Wiola hefur starfað mikið á Austurlandi þar sem hún hefur m.a. stýrt pólsku listahátíðinni Vor/ Wiosna í Sláturhúsinu, ásamt Ragnhildi Ásvaldsdóttur.

Um sýninguna segir Wiola:

„Melankólía er hugtak sem finnst í fornri, miðalda- og for-módernískri læknisfræði, notað til að lýsa ástandi sem líkist þunglyndi, oft í fylgd með ofskynjunum og ranghugmyndum. Hún var einnig talin eitt af grundvallar skapgerðareinkennum mannsins. Á þessari sýningu vil ég stöðva tímann og leyfa mér að finna fyrir vonleysi.

Með hætti skynjunar á því undarlega og því óhugnanlega, eins og Mark Fisher lýsti þeim, býð ég bæði sjálfri mér og áhorfandanum að horfast í augu við heim sem hangir á milli fortíðar og nútíðar. Það undarlega kemur fram þegar eitthvað á ekki heima í þeim heimi sem það birtist í; það óhugnanlega snertir truflandi fjarveru og návist.“

Sýningin er styrkt af Uppbyggingasjóði Austurlands, Múlaþingi, Myndlistarsjóði, pólska menningarmálaráðuneytinu og Kuyavian-Pomeranian Voivodeship. Hún stendur yfir til ágústloka og er opin á opnunartíma Sláturhússins.

Sumarsýning Sláturhússins: Melancholia
Getum við bætt efni þessarar síðu?