Fara í efni

Sveitar- og bæjarstjórar brunuðu um brekkur Austurlands

22.01.2026 Fréttir

Fjarðabyggð og Múlaþing hafa gert með sér áframhaldandi samstarfssamning um skíðasvæðin í Oddsskarði og Stafdal. Samningurinn var undirritaður af bæjar- og sveitarstjórum sveitarfélaganna á dögunum og markar skref í átt að betra aðgengi og aukinni þjónustu fyrir skíðafólk á Austurlandi.

Að þessu tilefni ákváðu Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar og Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings að fagna á besta mögulega hátt, með því að skella sér á skíði í Stafdal og Oddsskarði. Þannig slóu þær tvær flugur í einu höggi og nutu þær þess sem bæði svæðin hafa upp á að bjóða.

Á milli ferða niður brekkurnar hafði Dagmar Ýr Stefánsdóttir orð á því að: „Við fögnum því að þetta samstarf haldi áfram enda verður þjónusta við íbúa og gesti betri með þessu móti. Þá gefur samstarfið okkur kost á að byggja frekar undir vetraferðaþjónustu á svæðinu en við eigum mikið inni þar.“

Jóna Árný Þórðardóttir tók undir orð hennar og sagði: „Þetta samstarf er mikilvægt skref fyrir skíðafólk á Austurlandi. Með því að samræma kerfi og auðvelda aðgengi að Oddsskarði og Stafdal gerum við fólki einfaldara að nýta skíðasvæðin eftir því sem aðstæður og opnunartími leyfa. Það styrkir vetrarafþreyingu á svæðinu, bætir þjónustu við íbúa og gesti og styður við jákvæða þróun í ferðaþjónustu og mannlífi á Austfjörðum."

Sveigjanleiki fyrir íbúa og gesti sniðið að aðstæðum og opnunartíma

Á Austurlandi getur veðrið verið mikill áhrifavaldur í aðgengi og skipulagningu. Opnunartími skíðasvæðanna veltur þannig að miklu leiti á því. Með þessu samstarfi og samræmdri lausn fyrir sölu og aðgangsstýringu verður einfaldara fyrir íbúa og gesti að nýta skíðasvæðin eftir því hvað hentar hverju sinni, hvort sem það er Oddsskarð eða Stafdalur, eftir aðstæðum, opnun og veðri. Þetta samstarf hófst síðasta vetur og það sýndi sig að íbúar landshlutans tóku þessari nýbreyttni opnum örmum og nýttu sér svæðin vel.

Íbúar og gestir eru hvattir til að skella sér á skíði enda kjörið tækifæri til útivistar, samveru með vinum og fjölskyldu og afbragðs góð skemmtun!

Hægt er að kaupa miða í fjöllin í gegnum þennan hlekk

Sveitar- og bæjarstjórar brunuðu um brekkur Austurlands
Getum við bætt efni þessarar síðu?