Vegna tafa á innleiðingu nýs skráningarkerfis fyrir frístundastarf sveitarfélagsins hafa orðið seinkanir á því að reikningar séu sendir út.
Reikningarnir sem um ræðir eru vegna sumarfrístundar síðastliðið sumar, sumarnámskeið fyrir börn í 5. - 7. bekk og vetrarfrístundar á Djúpavogi frá upphafi skólaárs og vetrarfrístund seinni part dags í október í Egilsstaðaskóla.
Reikningarnir verða sendir út á næstu dögum. Fjöldi reikninga getur verið misjafn eftir því hvaða þjónusta var nýtt.
Til þess að koma í veg fyrir að reikningarnir komi á óvart hafa forsjáraðilum verið sendur tölvupóstur með upplýsingum um málið.
Sveitarfélagið harmar þessar tafir og biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér.