Tafir hafa orðið á sorphirðu á Seyðisfirði vegna veðurs og ófærðar undanfarið.
Sorphirða á öllum úrgangsflokkum við heimili fer fram ýmist á morgun fimmtudag 9. apríl eða föstudag 10. apríl.
Íbúar eru beðnir um að huga að aðgengi að sorptunnum og gæta þess að snjór hindri ekki sorphirðu.
Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem orðið hafa á sorphirðu vegna þessara óviðráðanlegu aðstæðna.