Fara í efni

Takmörkuð opnun sundlaugar á Djúpavogi

27.10.2026 Tilkynningar Djúpivogur

Vegna bilunar í hreinsibúnaði og hitakerfi sundlaugarinnar á Djúpavogi verður stóra sundlaugin og annar heiti potturinn lokuð út október hið minnsta. Ástæða þess að viðgerð dregst er meðal annars langur afhendingartími varahluta.

Áfram verður opið í barnalaug og öðrum heita pottinum, auk þess sem íþróttasalur og líkamsrækt verða opin samkvæmt hefðbundnum opnunartíma.

Ekki liggur fyrir nákvæm dagsetning á því hvenær hægt verður að opna sundlaugina á ný. Upplýsingar verða uppfærðar þegar frekari tíðindi berast af viðgerðinni.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda og íbúum og öðrum gestum þakkaður sýndur skilningur.

Íþrótta- og tómstundadeild Múlaþings

Mynd: Andrés Skúlason
Mynd: Andrés Skúlason
Getum við bætt efni þessarar síðu?