Fara í efni

Þjónustumiðstöð almannavarna á Seyðisfirði

22.12.2020 Fréttir

Þjónustumiðstöð almannavarna hefur verið opnuð á Seyðisfirði. Ríkislögreglustjóri hefur heimild til að starfrækja tímabundna þjónustumiðstöð þegar hættu ber að garði eða hún er um garð gengin.

 

Þjónustumiðstöðin er til húsa í Herðubreið, menningar- og félagsheimili Seyðisfjarðar, og verður opnunartíminn fram að áramótum eins og hér segir:

 

23. desember, klukkan 11.00 – 18.00

27.-30. desember, klukkan 11.00 - 18.00

31. desember, klukkan 11.00 – 13.00

 

Boðið er upp á sálræna þjónustu 23. desember, Þorláksmessu, milli kl. 13.00 og 16.00.

Einnig verður boðið upp á sálræna þjónustu dagana 28. – 31. desember milli kl. 13.00 og 16.00

 

Opnunartími þjónustumiðstöðvar eftir áramótin verður ákveðinn í lok ársins. Þjónustumiðstöðin verður opin eins lengi og hennar er þörf.

 

Verkefni þjónustumiðstöðvar felast meðal annars í upplýsingagjöf til almennings og þjónustu við þá aðila sem hafa orðið fyrir tjóni og hin tiltekna hætta hefur haft önnur bein áhrif á. Auk þess annast þjónustumiðstöðin, í samvinnu við hlutaðeigandi yfirvöld og stofnanir, samskipti við fjölmiðla vegna aðgerða sem gripið er til hverju sinni.

 

Íbúar eru hvattir til að nýta sér þjónustumiðstöðina með öll þau erindi sem á þeim hvíla varðandi atburði síðustu daga á Seyðisfirði.

 

Hægt er að hafa samband við þjónustumiðstöðina í síma 839 9931 og í netfangið sey@logreglan.is<mailto:sey@logreglan.is>

Herðubreið Seyðisfjörður
Herðubreið Seyðisfjörður
Getum við bætt efni þessarar síðu?