Fara í efni

Tilboð í farþegaakstur milli Egilsstaða og Djúpavogs

08.07.2026 Djúpivogur Egilsstaðir Auglýsingar

Múlaþing óskar eftir tilboðum í farþegaakstur/almenningssamgöngur milli Egilsstaða og Djúpavogs yfir komandi skólaár Menntaskólans á Egilsstöðum 2026-27. Um er að ræða helgarferðir einkum ætlaðar nemendum við skólann frá Djúpavogi.

Brottför frá Egilsstöðum verður síðdegis á föstudögum og frá Djúpavogi síðdegis á sunnudögum eða mögulega snemma á mánudögum. Bifreið í verkið skal geta flutt 19 farþega að lágmarki. Verktaki þarf að geta brugðist við verði farþegafjöldi meiri en flutningsgeta bifreiðar.

Framkvæmdatími er frá 21. ágúst 2026 til og með 21. maí 2027.

Um er að ræða tilraunaverkefni og því mikilvægt að verktaki sé samvinnufús og sveigjanlegur í takt við mögulegar breytingar á verki og breyttar þarfir yfir framkvæmdatímann.

Verklýsingu má fá með að senda póst á umhverfisfulltrui@mulathing.is

Frestur til að skila inn tilboðum er til og með 2. ágúst 2026

Tilboð í farþegaakstur milli Egilsstaða og Djúpavogs
Getum við bætt efni þessarar síðu?