Fara í efni

Tilboð óskast í endurnýjun girðingar frá Ási að Refsmýri

12.06.2026 Egilsstaðir Auglýsingar

Múlaþing, Land og skógur og Vegagerðin óska eftir tilboðum í endurnýjun girðingar frá Ási að Refsmýri í Fellum. Girðingin liggur frá veggirðingu í landi Áss, meðfram þjóðvegi og upp með Þorleifará í ristarhlið við Refsmýri um 4,2 km leið.

Verkið felst í að fjarlægja eldri girðingu, sem er að hluta rafmagnsgirðing og að hluta netagirðing, og girða netagirðingu í staðinn.

Frestur til að skila tilboðum er til og með 2. júlí 2026.

Verki skal að fullu lokið fyrir 30. október 2026.

Verklýsingu, tilboðsgögn og frekari upplýsingar má fá með því að senda póst á umhverfisfulltrui@mulathing.is.

Mynd af núverandi girðingu.
Mynd af núverandi girðingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?