Verkið felst í stækkun grunnskóla Seyðisfjarðar við Skólaveg 1. Skólinn verður stækkaður í tvær áttir, annars vegar til norðurs með viðbyggingu í sama útliti og núverandi skóli auk tengibyggingar við íþróttahús og hins vegar til suðurs með tengibyggingu við nýbyggingu.
Byggingin er með steyptar undirstöður, plötu og veggi, með stálbitum og súlum og timburþakvirki. Stærð stækkunar verður um 830m2 brúttóstærð gólfflatar.
Verkið felst í jarðvinnu, uppsteypu byggingarinnar og fullnaðarfrágangi að utan og innan ásamt lóðafrágangi.
Verkkaupi mun á verktíma leggja áherslu á vandaða umgengni um framkvæmdasvæðið.
Verkið getur hafist strax eftir gerð samnings og skal að fullu lokið fyrir 20. júlí 2028.
Nokkrar magntölur eru eftirfarandi:
- Uppgrafið efni 2.150 m3
- Mótasmíði 2.766 m2
- Steinsteypa 450 m3
- Utanhússklæðning 320 m2
- Þakfrágangur 830 m2
- Málun innanhúss 2.136 m2
- Frárennslislagnir 230 m
- Gólfhitalagnir 1600 m
- Loftræstikerfi loftstokkar 515 m
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með mánudeginum 15. júní 2026 og verða ekki afhent á pappír. Senda skal beiðni um útboðsgögn á umsjónarmann útboðs á netfangið signy@teknik.is og gefa upp nafn bjóðanda, kennitölu, heimilisfang, síma og netfang.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Múlaþings Lyngási 12 Egilsstöðum fyrir klukkan 14:00 fimmtudaginn 23. júlí 2026 þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.