Fara í efni

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi, – COVID-19

30.11.2021 Fréttir Covid - 19

If you live or work in Iceland, you have a right to vaccination against COVID-19. You can register for a vaccination and get more information by sending an email to bolusetning@hsa.is


Ef þú býrð eða starfar á Íslandi áttu rétt á bólusetningu við COVID-19. Þú getur skráð þig í bólusetningu með því að senda póst á bolusetning@hsa.is

Þá er í gangi bólusetningarátak yfirvalda og eru allir þeir sem geta hvattir til þess að láta bólusetja sig. Í nýrri samantekt embættis sóttvarnalæknis er fjallað um ávinning bólusetningar. Þar kemur fram að einstaklingur sem á í nánum samskiptum við Covid-smitaðan einstakling er 50% ólíklegri til að smitast hafi hann fengið fulla grunnbólusetningu en væri hann óbólusettur. Líkur á alvarlegum veikindum hjá bólusettum einstaklingi sem smitast eru jafnframt um fimmfalt lægri en hjá óbólusettum. Sá sem er bólusettur en smitast samt af Covid-19 er enn fremur mun ólíklegri til að smita aðra. Því ættu þeir sem enn hafa ekki verið bólusettir við Covid-19 að fara í bólusetningu hið fyrsta (https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/greinar/grein/item47857/Tilefni-orvunarbolusetninga-gegn-COVID).

Undanfarið hafa Covid-smit verið fleiri á Austurlandi en lengst af faraldrinum. Flestir jafna sig sem betur fer þokkalega á ca. 2 vikum og eru þá útskrifaðir úr einangrun af starfsmanni Covid-göngudeildar Landspítala. Að útskrift lokinni er fólki eindregið ráðlagt að fara sérstaklega varlega fyrst á eftir og gæta mjög vel allra persónulegra sóttvarna. Að jafnaði má fólk fara að vinna og gerir sílkt í samráði við sinn yfirmann. Þá er mikilvægt að við tökum samstarfsfólki okkar vel þegar það kemur til baka úr þessum veikindum eins og öllum öðrum veikindum. Munum að bros, falleg orð og samkennd í slíkum aðstæðum eru heilandi og hið gagnstæða að sama skapi niðurbrjótandi.

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi, – COVID-19
Getum við bætt efni þessarar síðu?