Vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði hefur Veðurstofa Íslands ákveðið rýmingu húsa á reitum SE01, SE02, SE04, SE24 og SE26 frá og með klukkan 20:00 í kvöld. Þeir rýmingarreitir er um ræðir má finna á kortasjá Múlaþings, undir valmöguleikanum „Skipulag-rýmingarsvæði“.
Íbúar húsa á þessum reitum, rétt um tíu talsins, hafa verið upplýstir. Gert er ráð fyrir að rýming standi eigi skemur en til hádegis á morgun þegar veðrið á að ganga niður.
Í Neskaupstað hafa og verið gerðar ráðstafanir vegna varúðar á reit NE01 sem sjá má hér á Fjarðabyggð | Kortasjá | Loftmyndir af Íslandi | Íslandskort | Map of Iceland. Einnig undir valmöguleikanum „Skipulag-rýmingarsvæði“. Atvinnuhúsnæði er á því svæði og hefur verið takmörkuð dvöl þar til morguns.
Ekkert ferðaveður er á meðan veðrið gengur yfir. Fjallvegir eru lokaðir eða að lokast en vegir í byggð eru opnir.
Íbúar á Seyðisfirði og í Neskaupstað sem upplifa óþægindi vegna aðstæðna eru hvattir til að hafa samband við hjálparsíma Rauða kross Íslands í síma 1717.