Minni háttar vatnstruflanir verða í þessari viku vegna framkvæmdanna í Markarlandi á Djúpavogi.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Uppfært
Frá klukkan 17 í dag, 19. ágúst, verður lokað fyrir umferð upp Kamb vegna framkvæmda. Íbúum götunnar verður heimilt að keyra til síns heima upp Markarlandið frá Víkurlandi. Stefnt er að opnað verði aftur fyrir umferð upp Kamb eftir morgundaginn. Meðfram þessu verða einhverjar vatnstruflanir.