Fara í efni

Trjágróður á lóðamörkum

01.09.2022 Fréttir

Nokkuð er um að gróður á lóðum í sveitarfélaginu vaxi út fyrir lóðamörk og hindri þar umferð, skyggi á umferðarmerki eða sé vegfarendum og nágrönnum á annan hátt til ama.
Íbúar Múlaþings eru hvattir til að halda gróðri á lóðum sínum innan lóðamarka og gæta þess sérstaklega að hann hamli ekki umferð eða trufli nágranna á annan hátt. Starfsfólk umhverfis- og framkvæmdasviðs óskar eftir góðri samvinnu við að tryggja vegfarendum greiða leið og skapa umhverfi sem dregur úr líkum á slysum.

Nánari upplýsingar má fá í síma 4700 700 eða með því að senda póst á margret.sveinsdottir@mulathing.is.

Trjágróður á lóðamörkum
Getum við bætt efni þessarar síðu?