Vegna vinnu við nýja stofnlögn má gera ráð fyrir að truflanir verði á afhendingu á köldu vatni á Borgarfirði næstkomandi mánudag, 24. ágúst. Þetta getur verið allt frá litlum þrýstingi og upp í algert vatnsleysi um tíma. Vinna hefst um kl 10:00 og stendur allan daginn.
Fram kemur í tilkynningu frá HEF veitum að Réttarholt, Háteigur, Rafstöð Rarik, Ásgarður, Þórshamar og Vinaminni verði líklega alveg vatnslaus á meðan vinnunni stendur.
Vinnan er hluti af endurnýjun vatnslagna í þorpinu og endurbótum á tæknirými við vatnstankinn sem staðið hafa yfir undanfarin ár. Einnig er unnið að því að flýta tengingu á gegnumlýsingartæki sem er hluti af endurnýjuninni við dreifikerfið.
Beðist er velvirðingar á þeim truflunum sem þetta mun valda þorpsbúum og gestum.
Ef einhverjir húseigendur hafa ekki fengið tilkynningu um vatnsleysið í gegnum SMS er þeim bent á að skrá símanúmer sitt hér.