Tvö söfn í Múlaþingi eru tilnefnd til Íslensku safnaverðlaunanna 2026 en tilkynnt var um tilnefningarnar á sumardaginn fyrsta. Söfnin sem um ræðir eru Minjasafn Austurlands á Egilsstöðum og Tækniminjasafn Austurlands á Seyðisfirði en auk þeirra hljóta Borgarsögusafn Reykjavíkur, Listasafn Íslands og Stofnun Árna Magnússonar tilnefningar í ár.
Minjasafn Austurlands: Kjarval á Austurlandi
Minjasafn Austurlands er tilnefnt fyrir verkefnið Kjarval á Austurlandi sem fór fram á árunum 2024 og 2025. Verkefnið var samstarfsverkefni safnsins og menningarmiðstöðvanna tveggja í Múlaþingi sem eru Sláturhúsið á Egilsstöðum og Skaftfell á Seyðisfirði. Markmið þess var að fjalla um listamanninn Jóhannes Sveinsson Kjarval, sögu hans og tengsl við svæðið með fjölbreyttum hætti. Verkefnið var þrískipt, í fyrsta lagi sýning um Kjarval og tengsl hans við Austurland með gripum sem varðveittir eru í Minjasafni Austurlands, í öðru lagi var grunnskólabörnum á miðstigi af öllu Austurlandi boðið í Sláturhúsið að sjá leiksýninguna Kjarval í uppfærslu Borgarleikhússins og í þriðja lagi var sett upp myndlistarsýning með verkum Kjarvals í Skaftfelli í samstarfi við Listasafn Íslands.
Í rökstuðningi með tilnefningunni segir að verkefnið sé frábært dæmi um hvernig safnastarf getur skapað vettvang fyrir þverfaglegt samstarf, eflt tengsl milli landshluta og aukið aðgengi barna og ungmenna að list og menningarsögu. Sérstaklega hafi tekist vel til við að vekja athygli á tengslum Kjarvals við Austurland, sem eru ekki sjálfgefin í vitund yngri kynslóða. Þá segir að verkefnið sé heildstætt og faglega unnið, það hafi mikið fræðslu- og samfélagslegt gildi og sé öðrum menningarstofnunum til fyrirmyndar.
Tækniminjasafn Austurlands: Uppbygging og endurreisn
Tækniminjasafn Austurlands er tilnefnt fyrir uppbyggingu og endurreisn safnsins í kjölfar skriðufallanna 2020. Í rökstuðningi segir að safnið sé skýrt dæmi um hvernig unnt sé að snúa vörn í sókn með fagmennsku, seiglu og markvissri samvinnu. Safnið hafi á undanförnum árum staðið frammi fyrir fordæmalausum áskorunum í kjölfar skriðufallanna en viðbrögð starfsfólks hafi verið bæði öflug og lærdómsrík fyrir íslenskt safnasamfélag. Markvisst hafi verið unnið að björgun, skráningu og varðveislu minja við krefjandi aðstæður. Á sama tíma hafi safnið nýtt þetta umbreytingaskeið til að endurskoða heildarstefnu sína, móta skýra framtíðarsýn og náð að halda úti öflugri miðlun og sýningastarfsemi.
Verðlaununum ætlað að vekja athygli á því sem vel er gert
Að Íslensku safnaverðlaununum standa Íslandsdeild ICOM og Félag íslenskra safna og safnafólks. Verðlaunin eru veitt annað hvert ár og er ætlað að vekja athygli á því sem vel er gert á íslenskum söfnum. Þeim er jafnframt ætlað að efla faglegan metnað og vera hvatning til að kynna menningu þjóðarinnar á framsækinn og áhugaverðan hátt. Verðlaunin eru veitt einu safni en heiðurinn sem felst í tilnefningu er ekki síður mikill.
Verðlaunin verða veitt þann 18. maí næstkomandi, á alþjóðlega safnadeginum, og mun athöfnin fara fram á Kjarvalsstöðum. Nánar má lesa um verðlaunin, söfnin sem tilnefnd eru og rökstuðning valnefndar á vef Íslandsdeildar ICOM.

Tækniminjasafn Austurlands á Seyðisfirði