Fara í efni

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að breytingu á starfsleyfi Fiskeldis Austfjarða hf. í Berufirði

05.02.2021 Fréttir

Um er ræða breytingu á grein 1.2 sem snýr að heimild til notkunar á frjóum laxi. Breytingin á notkun á frjóum laxi er í samræmi við endurskoðað mat Hafrannsóknarstofnunar á erfðablöndun. Einnig eru gerðar breytingar og uppfærslur á leyfinu til samræmis við nýjustu leyfi sem gefin eru út af stofnuninni. Allar breytingar eru skilgreindar með hornklofa í leyfistillögunni.

Athugasemdir við breytingarnar skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is). Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 3. mars 2021. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Nánar má lesa um málið hér.

Ljósmynd fengin af vef Umhverfisstofnunar.
Ljósmynd fengin af vef Umhverfisstofnunar.
Getum við bætt efni þessarar síðu?