Fara í efni

Umhyggjudagurinn í Múlaþingi

24.08.2023 Fréttir

Umhyggja, félag langveikra barna og fjölskyldna þeirra, stendur fyrir Umhyggjudeginum víðsvegar um land laugardaginn 26. ágúst næstkomandi. Markmið Umhyggjudagsins er að vekja athygli á félaginu og því góða starfi sem þar er unnið.  

Í tilefni dagsins verður frítt í sundlaugar Múlaþings eins  og hér segir: 

  • Djúpivogur klukkan 12:00-14:00 
  • Egilsstaðir klukkan 14:00-16:00 
  • Seyðisfjörður klukkan 12:00-14.00 

Börn sem mæta í sund á þessum tíma fá sundpoka merktan Umhyggju að gjöf á meðan birgðir endast. 

Hægt er að kynna sér starf Umhyggju nánar á vefsíðu félagsins.

Umhyggjudagurinn í Múlaþingi
Getum við bætt efni þessarar síðu?