Fara í efni

Uppbygging íbúða á Seyðisfirði - óskað eftir byggingaraðilum

14.12.2020 Fréttir

Leigufélagið Bríet og Múlaþing óska eftir byggingaraðilum til að taka þátt í uppbyggingu íbúða á Seyðisfirði

Leigufélagið Bríet stefnir á uppbyggingu á hagkvæmum leiguíbúðum á Seyðisfirði og auglýsir því eftir byggingaraðilum til samstarfs. Byggingaraðili skal vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnis í samráði við sveitarfélagið og Leigufélagið Bríeti.

Gögn fyrir samstarfsaðila er hægt að nálgast með að senda tölvupóst á soffia@ briet.is og skal gögnum skilað fyrir mánudaginn 21. desember 2020. Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæði lausna.

Nánari upplýsingar veita Soffía Guðmundsdóttir framkvæmdarstjóri Bríetar (soffia@briet.is) og Elmar Erlendsson (elmar.erlendsson@hms.is).

Sjá nánar hér

Uppbygging íbúða á Seyðisfirði - óskað eftir byggingaraðilum
Getum við bætt efni þessarar síðu?