Haldinn verður opinn íbúafundur í Sláturhúsinu um uppbyggingu miðbæjar á Egilsstöðum mánudaginn 27. apríl klukkan 16:30.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Staðan á vinnu við uppbyggingu miðbæjar á Egilsstöðum – Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
- Ísland á ýmis tækifæri - Austurland er eitt af þeim – Jón Þorvaldur Heiðarsson lektor við Háskólann á Akureyri
- Kynning á starfsemi Klasa - þekkingarfyrirtæki í þróun fasteigna - Sólveig Jóhannesdóttir verkefnastjóri
- Samtal við gesti fundarins
Fundurinn er ætlaður öllum áhugasömum um uppbyggingu miðbæjar á Egilsstöðum.