Fara í efni

Uppfært kl. 18.15 : Aurskriður á Seyðisfirði - hættustig - áframhaldandi rýming

17.12.2020 Fréttir

Ástand er enn óbreytt á Seyðisfirði vegna úrkomu. Hættustig því enn í gildi. Áframhaldandi rýming í nótt. Staðan verður tekin að nýju um klukkan ellefu á morgun og tilkynning þá send íbúum. Í þeirri sömu tilkynningu mun koma fram hvort þeim sé óhætt að huga að eigum sínum á rýmingarsvæði.

Fjöldahjálparstöð verður opin til klukkan tíu í kvöld og opnar aftur átta í fyrramálið. Björgunarsveitarhús Ísólfs opnar á sama tíma og hægt að leita þar frekari upplýsinga.

Ljósmynd frá lögreglu.
Ljósmynd frá lögreglu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?