Fara í efni

Upplýsingar vegna greiningar á skæðri fuglaflensu á Íslandi í apríl 2022

28.04.2022 Fréttir

Samkvæmt ákvæðum 7. gr. laga nr. 55/2013 um velferð dýra um hjálparskyldu er skilgreint að þeim sem verði varir við sært eða sjúkt dýr eða að það sé bjargarlaust að öðru leyti, beri að veita dýrinu umönnun eftir föngum. Sé um villt (og hálfvillt) dýr að ræða (s.s. villta fugla) er sveitarfélagi skylt að sjá til þess að gripið sé til aðgerða, að koma dýrinu til hjálpar eða aflífa.

Ef vart verður við veika ósjálfbjarga fugla í nærumhverfi manna er möguleiki á að fuglinn sé veikur vegna smits af fuglaflensuveirunni. Þó svo að litlar líkur séu taldar á smiti yfir í mannfólk eða önnur dýr þá mælir Matvælastofnun með að fyllstu varúðar og smitgátar sé gætt. Ekki skal handleika fugla sem mögulega eru taldir vera smitaðir af fuglaflensu, án tilskilins hlífðarbúnaðar. Ekki er ráðlagt að skjóta slíka fugla, rota eða skera m.t.t. smitvarna

Almenningi er því ráðið frá að handleika veika fugla, en heldur beina erindi sínu til sveitarfélags, sem svo þarf að sjá til þess að gripið sé til aðgerða út frá dýravelferðarsjónarmiðum.

Utan skrifstofutíma sveitarfélaga eiga erindi að beinast til lögreglu, sem getur þá sett málin í sama farveg.

Þegar villtur fugl finnst dauður, skal hafa samband við MAST, nema ef augljóst er að hann hafi drepist af slysförum. Best er að tilkynna um dauðan fugl með því að skrá ábendingu á heimasíðu MAST en einnig er hægt að hringja í síma 530 4800 á opnunartíma eða senda tölvupóst á netfangið mast@mast.is. MAST metur hvort taka skuli sýni úr fuglinum.

Hræ skal látið liggja nema ef það er þannig staðsett að nauðsynlegt sé að fjarlægja það. Ef það er gert skal hræið sett í plastpoka, án þess að það sé snert með berum höndum. Lokað skal fyrir pokann og hann síðan settur í almennt rusl.

Meiri upplýsingar um fuglaflensu og ýmsar spurningar og svör er að finna á heimasíðu Matvælastofnunar

Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við starfsmenn Matvælastofnunar. Hægt er að beina erindum á tölvupóst á netfangið mast@mast.is eða hringja í síma 530 4800 á opnunartíma.

 

Upplýsingar vegna greiningar á skæðri fuglaflensu á Íslandi í apríl 2022
Getum við bætt efni þessarar síðu?