Fara í efni

Úthérað – opinn fundur í Hjaltalundi

05.04.2022 Fréttir Egilsstaðir

Um nokkurt skeið hefur verið unnið að verkefni á vegum Fljótsdalshéraðs og nú Múlaþings undir heitinu Úthéraðsverkefnið. Upphaflegur tilgangur verkefnisins var að gera tillögur um hvernig mætti gera Úthérað að áfangastað ferðamanna og bæta búsetuskilyrði á svæðinu og stuðla að vernd náttúruperla. Verkefnið hefur tafist og seinkað vegna covid en nú er boðað til opins fundar um stöðu þess og framtíð.

Fundurinn fer fram í félagsheimilinu Hjaltalundi fimmtudaginn 7. apríl klukkan 17.30. Allir eru velkomnir.

 

Dagskrá:

  • Farið yfir tilurð, tilgang og stöðu verkefnisins – Stefán Bogi Sveinsson frá Múlaþingi
  • Farið yfir niðurstöður greinargerða sem Náttúrustofan vann um svæðið – Guðrún Óskarsdóttir frá Náttúrustofu Austurlands
  • Hvert á að stefna næst? Hverjar eiga áherslur verkefnisins að vera? – Jóna Árný Þórðardóttir og Tinna K. Halldórsdóttir frá Austurbrú leiða umræður.
Úthérað – opinn fundur í Hjaltalundi
Getum við bætt efni þessarar síðu?