Minnt er á að útivistartími barna og unglinga breytist að nýju 1. september, jafnvel þó svo við séum enn að njóta sólar og sumars. Í barnaverndarlögum segir:
„Börn, 12 ára og yngri, mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20:00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22:00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu.“
Gildir útivistartíminn fyrir fæðingarárið en ekki fæðingardag og því gilda sömu reglur fyrir öll börn sem fædd eru á sama ári.
Hægt er að lesa ýmsar ástæður fyrir því að takmarka útivist barna og unglinga á heimasíðu umboðsmanns barna. Þar er að auki áréttað að reglur um útivistartíma segja til um hvað börn og unglingar mega vera lengi úti á kvöldin en ekki hvað þau eiga að vera lengi úti. Foreldrar geta því hæglega sett sínar eigin reglur innan þess ramma sem reglurnar setja. Eftir 16 ára aldur er það foreldra, í samráði við ungmennin, að setja reglur um útivist.
Samkvæmt embætti landlæknis er meðal svefnþörf barna og unglinga á bilinu 9-10 klukkustundir á nóttu. Í svefni hvílist líkaminn og endurnærist og er svefn bráðnauðsynlegur til að viðhalda bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Það er því alveg ljóst að nauðsynlegt er að hver einstaklingur fái nægan svefn til að geta lifað og starfað í samfélaginu okkar.
Stöndum saman og virðum útivistarreglurnar!
