Verkefnastjóri umhverfismála hjá Múlaþingi, Stefán Aspar Stefánsson, verður með opna viðtalstíma í Geysi á Djúpavogi fimmtudaginn 28. maí klukkan 13:00-14:00. Hægt er að panta tíma hjá umhverfisfulltrui@mulathing.is eða mæta á staðinn.
Verkefnastjóri umhverfismála kemur að fjölbreyttum verkefnum, þar á meðal eru:
- Sorphirða og meðhöndlun úrgangs
- Refa- og minkaveiði
- Fjallskil
- Gæludýrahald
- Opin svæði og garðar
Hægt er að ræða hin ýmsu umhverfismál við verkefnastjóra umhverfismála sem getur veitt ráðgjöf og/eða komið þeim í viðeigandi farveg.