Fara í efni

Verkefnastjóri umhverfismála á Seyðisfirði

04.06.2026 Fréttir

Verkefnastjóri umhverfismála hjá Múlaþingi, Stefán Aspar Stefánsson, verður með opna viðtalstíma á bæjarskrifstofunni á Seyðisfirði, Hafnargötu 44, mánudaginn 8. júní milli kl.13:00 -14:00.

Hægt er að panta tíma hjá umhverfisfulltrui@mulathing.is eða mæta á staðinn.

Verkefnastjóri umhverfismála kemur að fjölbreyttum verkefnum, þar á meðal eru:

  • Sorphirða og meðhöndlun úrgangs
  • Umgengni utanhúss svo sem númerslausir bílar
  • Refa- og minkaveiði
  • Fjallskil
  • Gæludýrahald
  • Opin svæði og garðar
  • Almenningssamgöngur

Hægt er að ræða hin ýmsu umhverfismál við verkefnastjóra umhverfismála sem getur veitt ráðgjöf og/eða komið þeim í viðeigandi farveg.

Verkefnastjóri umhverfismála á Seyðisfirði
Getum við bætt efni þessarar síðu?