Vetraráætlun strætó milli Egilsstaða og Fellabæjar hefur tekið gildi.
Í Fellabæ verður áfram stoppað við Fellaskóla / Hádegishöfða vegna gatnaframkvæmda í Lagarfelli og er það jafnframt upphafs- og endastöð. Biðlað er til þeirra sem nota bílastæðin við Fellaskóla / Hádegishöfða að leggja aðeins í merkt stæði, eða neðar í götunni, til að hindra ekki akstursleið strætó.
Þá er einnig vakin athygli á nýrri stoppistöð við Egilsstaðaflugvöll en nú er stoppað rétt áður en komið er að flugstöðinni. Þannig komast farþegar í flug án þess að þurfa að ganga yfir umferðargötu eða bílastæði.
Hægt er að komast með strætó í og úr reglubundnu flugi alla virka daga og eru farþegar hvattir til að nýta sér það. Jafnframt eru íbúar og gestir hvattir til að nýta sér gjaldfrjálsar almenningssamgöngur sem oftast.
