Veðurstofa Íslands spáir hvassviðri og óhagstæðri átt fyrir sjólag, með hárri ölduhæð og áhlaðanda. Eigendur báta í höfnum eru því hvattir til að huga sérstaklega vel að bindingum þeirra.
Jafnframt er íbúum bent á að ganga frá lausamunum við hús og á lóðum til að draga úr hættu á tjóni.
Þá eru íbúar einnig hvattir til að huga að niðurföllum sem geta verið full af laufum á þessum árstíma.