Hversu oft hugsar þú um heimsmarkmiðin í þínu daglega lífi? Getur verið að þú sért að vinna að þeim án þess að vita af því?
Vika 17 er alþjóðleg vika heimsmarkmiðanna á bókasöfnum. Hún fer fram í 17. viku ársins en árið 2026 eru það dagarnir 20.-26. apríl. Í tilefni vikunnar verða ýmsir viðburðir tengdir heimsmarkmiðunum á dagskrá bókasafna vítt og breytt um landið.
Verkefnið á uppruna sinn að rekja til Danmerkur en í dag taka hátt í 200 bókasöfn frá 12 mismunandi löndum þátt. Markmiðið er að vekja athygli á heimsmarkmiðunum 17 með fjölbreyttum viðburðum og sýna að við getum öll lagt okkar af mörkum.
Á Bókasafni Múlaþings verður boðið upp á plokkbingó á öllum starfsstöðvum þess. Hægt er að koma á sitt safn og fá útprentað bingó eða styðjast við þetta sem er hér.
Á Seyðisfirði er einnig boðið upp á fræskipti á blóma-, grænmetis- og kryddjurtafræjum og á Egilsstöðum er í apríl lögð áhersla á bækur sem tengjast umhverfismálum – bæði grípandi skáldsögur og fróðlegar bækur sem vekja okkur til umhugsunar ![]()
![]()
![]()
Heimsmarkmiðin eru mörg og fjölbreytt. Þau eru samþætt og órjúfanleg og mynda jafnvægi milli þriggja stoða sjálfbærrar þróunar; hinnar efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu. Þá fela þau einnig í sér fimm meginþemu sem eru mannkynið, jörðin, hagsæld, friður og samstarf. Aðalinntak markmiðanna er jafnframt að engir einstaklingar eða hópar verði skildir eftir. Nánari upplýsingar um heimsmarkmiðin má finna á heimsmarkmidin.is.
