Fara í efni

Vika sex: árleg vika kynheilbrigðis í Múlaþingi

09.02.2022 Fréttir

Nú er sjötta vika ársins hafin en hún hefur fest sig í sessi sem árleg vika kynheilbrigðis í skólum og félagsmiðstöðvum víða um land. Allar félagsmiðstöðvar í Múlaþingi helga dagskrá sína kynfræðslu í Viku Sex auk þess sem bókasöfnin í sveitarfélaginu hafa sett upp útstillingar með bókum tengdum kynheilbrigði.

Á hverju ári er unnið með mismunandi þemu en í ár er áherslan lögð á Kynlíf og menningu. Í félagsmiðstöðvunum verður t.a.m. farið í að skoða hvernig ást og kynlíf birtast í bókmenntum, tónlist, bíómyndum, klámi, auglýsingum, unglingamenningu, á samfélagsmiðlum, í útvarpi, myndlist o.s.frv. Hvað eru góð skilaboð og hvað eru skökk eða jafnvel skaðleg skilaboð? Hvernig hafa þessi málefni breyst í menningu okkar síðastliðna áratugi?

Hluti af markmiðum þess að bjóða upp á þemaviku um kynheilbrigði í félagsmiðstöðvunum er meðal annars:

  • Að þjálfa börn og unglinga í að koma auga á og virða sín eigin mörk og mörk annarra. Að þau átti sig á að hver einstaklingur er einstakur og mörk fólks geta verið misjöfn.
  • Að auka þekkingu barna og unglinga varðandi kyn, kynvitund og kynhneigð, líkama, tilfinningar, réttindi, samskipti og kynheilbrigði
  • Að efla sjálfsmynd barna og unglinga og þjálfa þau í gagnrýnni hugsun. Að efla þau í að taka ákvarðanir sem valda þeim og öðrum vellíðan en ekki skaða.
  • Að gera börn og unglinga meðvituð um kynheilsu sína og hvetja þau til að velja og hafna út frá sínum eigin forsendum en með virðingu fyrir öllum hlutaðeigandi að leiðarljósi.

Eins og fyrr segir taka bókasöfnin virkan þátt í átakinu í ár eins og sjá má af útstillingum þeirra í tilefni af Viku Sex.                                                                           

 

 

 

Sérstök áhersla er í ár lögð á kynferðislegar myndsendingar og er veggspjald um þær komið upp í öllum félagsmiðstöðvum.

Vika sex: árleg vika kynheilbrigðis í Múlaþingi
Getum við bætt efni þessarar síðu?