Það er mikið um að vera í Sláturhúsinu menningarmiðstöð þessa dagana en þar standa nú yfir æfingar á fjölskyldusöngleiknum Vinir Egils Skalla sem frumsýndur verður 15. nóvember næstkomandi. Mikil vinna liggur að baki uppsetningunni, undirbúningur er í fullum gangi og verkið farið að taka á sig mynd.
Söngleikurinn var saminn sérstaklega fyrir Sláturhúsið af Karli Ágústi Úlfssyni en leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Ágústa hefur víðtæka reynslu af leikhússtarfi og leikstýrði meðal annars barnasýningunni Hollvættir á heiði sem sett var upp í Sláturhúsinu árið 2023 og hlaut Grímuverðlaunin sem barnasýning ársins.
Listafólk úr ólíkum áttum
Leikhópurinn samanstendur af listafólki úr heimabyggð og atvinnuleikurum af höfuðborgarsvæðinu. Samsetning hópsins býður upp á skemmtilegt samstarf þar sem ólík reynsla og hæfileikar koma saman. Katla Rut Pétursdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar í Sláturhúsinu, segir óhætt að byrja að hlakka til: "Sláturhúsið er höfuðvettvangur sviðslista á Austurlandi og með Vinum Egils Skalla gefst ungum sem öldnum kostur á að njóta leikhúss í heimabyggð og sjá afrakstur samstarfs listafólks úr ólíkum áttum. Nú þegar frumsýningin nálgast er spennandi að fylgjast með undirbúningnum og sjá hvernig allir þættir sýningarinnar falla saman. Hægt er að fylgjast með því sem fram fer á bak við tjöldin á samfélagsmiðlum Sláturhússins. Við hlökkum mikið til að taka á móti gestum og sýna þeim afrakstur vinnunnar".
Sýningin Vinir Egils Skalla verður frumsýnd 15. nóvember í Sláturhúsinu. Miðasala mun fara fram á tix.is og verður opnuð um mánaðamót.