Fara í efni

Vinna við Markarland 10 á Djúpavogi

30.01.2026 Fréttir Djúpivogur

Framkvæmdir hefjast í dag við Markarland 10 á Djúpavogi og standa yfir í um það bil eina viku. Möguleg röskun verður vegna þess að gámar verða settir á annan vegarhelming götunnar, sjá mynd.

Markarland 10 er sökkullinn hægra megin og guli reiturinn er sirka þar sem gámar verða settir niður. Húsið kemur í einingum í gámum og verða þær síðan hífðar á sökkulinn.

Vinna við Markarland 10 á Djúpavogi
Getum við bætt efni þessarar síðu?