Fara í efni

Wathneshús undirbúið til flutnings á nýjan stað

06.07.2026 Fréttir Seyðisfjörður

Gömul saga á nýjum grunni til framtíðar

Undirbúningur er hafinn að flutningi Wathneshúss á Seyðisfirði frá Hafnargötu 44 að Ránargötu 1. Húsið, sem er eitt af merkari húsum Seyðisfjarðar, verður flutt á nýja jarðhæð sem byggð verður sérstaklega undir húsið á nýjum stað.

Wathneshús var fullbyggt árið 1894 fyrir norska athafnamanninn Otto Wathne, sem var mjög umsvifamikill á Seyðisfirði á 19. öld og hefur stundum verið nefndur „faðir Seyðisfjarðar“. Húsið þótti á sínum tíma einstakt stórhýsi og skrauthýsi og eitt vandaðasta og veglegasta íbúðarhús sem reist var hér á landi á 19. öld.

Frá árinu 1906 gegndi húsið mikilvægu hlutverki í fjarskiptasögu landsins, meðal annars sem ritsímastöð og fjarskiptamiðstöð. Síðar hýsti það bæjarskrifstofur Seyðisfjarðar og aðstöðu fyrir Tækniminjasafn Austurlands.

Ákvörðun um flutning Wathneshúss er liður í þeirri vinnu sem hófst eftir skriðuföllin á Seyðisfirði í desember 2020, þegar ljóst varð að tryggja þyrfti framtíð mikilvægra húsa innan skilgreindra hættusvæða. Verkefnið nýtur stuðnings ríkisins, sem veitt hefur fjármagni til flutnings hússins í kjölfar skriðufallanna. Að undangenginni vinnu ráðgjafanefndar, þar sem meðal annars komu að fulltrúar Minjastofnunar Íslands, var lagt til að Wathneshús yrði flutt á lóð við Ránargötu 1. Staðsetningin hefur verið grenndarkynnt. Í þeirri kynningu bárust ýmsar gagnlegar athugasemdir og ábendingar sem unnið hefur verið úr og svarað eins og kostur er. Gagnlegar ábendingar og jákvæðar umsagnir hafa jafnframt borist frá Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni og HEF veitum.

Mynd með frétt af húsinu frá 1974, fengin af Sarpur.is

Framtíðin

Tölvugerð mynd af húsinu á nýjum stað.

Nú hafa næstu skref verið samþykkt. Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings samþykkti á fundi sínum 22. júní tilboð Úlfsstaða í jarðvinnu og uppsteypu á sökklum og jarðhæð að Ránargötu 1 og fól sviðsstjóra framkvæmda að ganga frá verksamningi. Í framhaldinu verður Wathneshús flutt af Hafnargötu 44 og sett á nýja jarðhæð. Flatarmál jarðhæðarinnar verður um 204 fermetrar og samkvæmt útboðsgögnum skal verkinu lokið fyrir 15. september 2026.

Úlfsstaðir munu einnig annast sjálfan flutning hússins sem stefnt er að eigi sér stað í október. Verktakinn hefur nýlega annast flutning á öðru sögulegu húsi á Seyðisfirði, Gamla ríkinu, og gekk sá flutningur mjög vel. Það hús er nú að taka á sig mynd á nýjum stað.

Næstu skref eru að undirbúa vinnusvæðið við Ránargötu og hefja uppsteypu nýrrar jarðhæðar undir húsið. Samhliða þeirri vinnu verður bæjarskrifstofan og önnur starfsemi sem hefur verið í húsinu flutt á annan stað til bráðabirgða og flutningur hússins undirbúinn. Þegar húsið hefur verið komið fyrir á nýjum stað tekur við frágangur húss og lóðar.

Með flutningi Wathneshúss er stigið mikilvægt skref í varðveislu eins merkasta húss Seyðisfjarðar. Verkefnið felur ekki aðeins í sér að færa hús af einum stað á annan, heldur að tryggja framtíð mikilvægs hluta af byggingar-, atvinnu- og fjarskiptasögu bæjarins. Á nýjum grunni við Ránargötu fær þessi gamla saga áframhaldandi sess í bæjarmynd Seyðisfjarðar, ekki sem minning um það sem var, heldur sem lifandi hluti af því sem tekur við.

Wathneshúsið (1974) mynd fengin af Sarpur.is, Ljósmyndari Þór Eyfeld Magnússon.
Wathneshúsið (1974) mynd fengin af Sarpur.is, Ljósmyndari Þór Eyfeld Magnússon.
Getum við bætt efni þessarar síðu?