Fara í efni

Blakkát - farandleiksýning

Víðsvegar um Austurland 9.-24. okt 2026

Leikfélag Fljótsdalshéraðs setur upp farandsýninguna Blakkát víðsvegar á Austurlandi í október.

„Guð minn góður! Hvað er ég að gera á hótelherbergi? Ég var á árshátíð, er það ekki? Hann hefur bara heillast af kynþokkanum. Verð ég ekki að hringja í ráðuneytisstjórann og útskýra? Eða ekki… Best að panta sér einn LÍTINN bjór. Taka úr sér mesta hrollinn.“

Bokka er ákaflega ungleg, rétt rúmlega fertug kona á besta aldri sem á það til að lenda í vandræðum af því að það er til svo mikið af fávitum. Þegar við hittum á hana Bokku er hún nýkrýnd drykkjudrottning Íslands og hefur unnið sér inn óminnisferð til Hveragerðis ásamt ýmsum aukavinningum.

Blakkát eftir Björk Jakobsdóttur er farsakennt leikrit um alkóhólisma, minnisleysi, mannlegan breyskleika og markaleysi. Hvað er ekki fyndið við það?

Sýningin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára. Ungmenni á aldrinum 16-18 ára þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.

Sýningarstaðir:

  • Borgarfjörður eystri - Fjarðarborg 9. október
  • Vopnafjörður - Mikligarður 10. október
  • Neskaupstaður - Egilsbúð 16. október
  • Seyðisfjörður - Herðubreið 17. október
  • Djúpivogur - Hótel Framtíð 23. október
  • Höfn - Hafið 24. október

Miðasala á svid.is

Almennt verð: 3.500, 65 ára og eldri: 2.000

Getum við bætt efni þessarar síðu?