Fara í efni

Íbúafundur heimastjórnar Fljótsdalshéraðs

Valas 25. nóvember 2026 kl. 17:00

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs boðar til íbúafundar miðvikudaginn 25. nóvember klukkan 17:00 í salnum Þingmúla í Valaskjálf á Egilsstöðum.

Dagskrá:

  1. Fráveitumál og boranir eftir heitu vatni. Aðalsteinn Þórhallsson framkvæmdastjóri HEF veitna ehf. og Glúmur Björnsson jarðfræðingur hjá HEF fjalla um fráveitumál og boranir eftir heitu vatni á Fljótsdalshéraði.
  2. Framkvæmdir og viðhaldsverkefni. Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda kynnir helstu framkvæmdir og viðhaldsverkefni sem eru í gangi eða á döfinni á svæðinu.
  3. Jólagarðurinn í Tjarnargarðinum. Íris Sverrisdóttir kynnir Jólagarðinn, sem verður að veruleika í Tjarnargarðinum á aðventunni.
  4. Önnur mál. Opið verður fyrir önnur mál sem íbúar vilja ræða við heimastjórn eða sveitarstjóra.

Íbúar eru hvattir til að mæta, kynna sér málin og koma sínum sjónarmiðum á framfæri við heimastjórnina.

Öll velkomin!

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs

Eiður Ragnarsson formaður, Anna Bragadóttir, Hafsteinn Jónasson

Getum við bætt efni þessarar síðu?