Fara í efni

Jólasamverustund í Jólagarðinum

Tjarnargarður, Egilsstöðum 29. nóvember 2026 kl. 16:30-17:30

Rúmlega 30 fyrirtæki hafa tekið þátt í að skreyta Tjarnargarðinn og gera hann að Jólagarðinum yfir aðventuna.

Jólagarðurinn verður formlega opnaður fyrsta sunnudag í aðventu (29. nóvember) með samverustund fyrir alla fjölskylduna milli 16:30-17:30.

Lúðasveit Fljótsdalshéraðs leikur nokkur lög og Náttúruskólinn verður með útikósý,

Tendrum jólajósin, drekkum heitt kakó, hlýjum okkur við varðeld, hlustum á jólalög og rekumst jafnvel á jólasveina á vappi.

Fyrirtækin sem taka þátt í þessu verkefni eru (og takk fyrir ykkur):
Húsasmiðjan, Íslandsbanki. Ylur, Elma Studio, VÓ smíði, River, Hótel Valaskjálf, Frú Nielsen,  INNI, Austur, Nettó, Tehúsið, Lyfja, Rafey, BVA, Rarik,  Setrið, Vaskur, COWI, Hús handanna, ÁD Garðúðun, Vök, Múlaþing, MT bókhald, Verkís, Austurbý, Málningarþjónusta Jóns Höjgaard, Askur, Sentrum, HEF, Austurbygg, Verkráð og Tannlæknastofa Austurlands. 
 
Hlökkum til að sjá ykkur!
- Bryndís og Íris
Getum við bætt efni þessarar síðu?