Á aðventunni verður fjölbreytt jóladagskrá á Seyðisfirði.
Fram undan eru viðburðir fyrir alla aldurshópa og ýmis tækifæri til að njóta þess sem bærinn hefur upp á að bjóða yfir hátíðarnar. Jóladagskrá Seyðisfjarðar má nálgast í heild sinni
hér
Þar má meðal annars finna jólakortagerð á Skaftfell Bistro, jólahlaðborð Hótel Öldunnar, Rithöfundalestina í Skaftfell, fjölskyldumessu í Bláu kirkjunni og jólagöngu Tækniminjasafnsins í myrkrinu og nýjan aðventuleik. Piparkökumálun á Hótel Öldunni, jólasýningu og markað í Herðubreið Gallerí og tendrun á jólatrénu við sjúkrahúsið. Vetrarsólstöðu vellíðan og girnilegan jólamatseðil á Skaftfell Bistro. Við hlökkum til að njóta aðventunnar saman.