Fara í efni

Rithöfundalestur(ur) á Djúpavogi

Faktor Brugghús 27. nóvember 2026 kl. 16:30
Árleg ferð Rithöfundalestarinnar um Austurland verður farin dagana 26.–29. nóvember. Í ár verða eftirtaldir höfundar með í för: Vilborg Davíðsdóttir, Illugi Jökulsson, Benný Sif Ísleifsdóttir, Skúli Björn Gunnarsson og Bergrún Íris Sævarsdóttir. Lestin stoppar á Faktor Brugghúsi á Djúpavogi föstudaginn 27. nóvember kl. 16:30. 
 
Lesendum á Austurlandi gefst hér einstakt tækifæri til að kynnast áhugaverðum jólabókum frá fyrstu hendi höfundanna sjálfra og taka þátt í jólabóka-samræðunni á Bókahátíðum um allt Austurland. Á hverjum viðkomustað verða kynntar bækur höfunda sem koma fljúgandi og hinna sem eru á staðnum, bækur sem tengjast Austurlandi á einn eða annan hátt. Hægt verður að kaupa bækur á staðnum og jafnvel fá áritun. Höfundar heimsækja einnig skóla og dvalarheimili aldraðra á yfirferð sinni og boðið upp á ritsmiðjur fyrir börn og fullorðna.
 
Rithöfundalestin er samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar, Skaftfells, Menningarstofu Fjarðabyggðar, menningarsviðs Múlaþings og Menningar- og atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps.
Verkefnið nýtur stuðnings Uppbyggingarsjóðs Austurlands, Síldarvinnslunnar, Alcoa, Atlantsolíu, Brims, Nestaks, Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað, Bílaleigu Akureyrar, Gistihússins á Egilsstöðum og bókaforlaganna Benedikts, Forlagsins, Bókabeitunnar og Orðs og lystar.
 
Verið öll velkomin! Ókeypis er inn á alla viðburði. Viðburðir fara fram á íslensku.
 

---

Dagskrá Rithöfundalestarinnar 2026
Miðvikudagur 25. nóvember
• kl. 15:00 – Reyðarfjörður: Ritsmiðja barna, Bókasafni Reyðarfjarðar
• kl. 17:00 – Fáskrúðsfjörður: Ritsmiðja barna, Bókasafni Fáskrúðsfjarðar

Fimmtudagur 26. nóvember
• Kl. 16:00 – Vopnafjörður: Barna- og ungmennaupplestur Bókasafni Vopnafjarðar
• Kl. 20:00 – Vopnafjörður: Bókahátíð, Kaupvangi

Föstudagur 27. nóvember
• Kl. 16:30 – Djúpivogur: Bókahátíð, Faktor Brugghúsi
• Kl. 20:00 – Fáskrúðsfjörður: Bókahátíð, Franska safninu

Laugardagur 28. nóvember
• Kl. 13:00 – Neskaupstaður: Barna- og ungmennaupplestur, Tónspili.
• Kl. 14:00 – Neskaupstaður: Bókahátíð, Tónspili
• Kl. 17:00 – Reyðarfjörður: Hernámsæskan – bókarkynning, Stríðsárasafninu
• Kl. 20:00 – Seyðisfjörður: Bókahátíð, Skaftfelli

Sunnudagur 29. nóvember
• kl. 11:00 – Egilsstaðir: Barna- og ungmennaupplestur, Bókasafni Múlaþings Egilsstöðum
• kl. 13:00 – Fljótsdalur: Grýlugleði og jólakatta-ritsmiðja
• Kl. 15:00 – Fljótsdalur: Bókahátíð í beinu streymi, Skriðuklaustri
Getum við bætt efni þessarar síðu?