Fara í efni

Skáknámskeið á Bókasafni Múlaþings Seyðisfirði fyrir börn í 5.-7. bekk

Bókasafn Múlaþings Seyðisfirði 25. nóvember 2026 kl. 16:00-18:00

Bókasafn Múlaþings Seyðisfirði býður upp á sex tíma skáknámskeið fyrir börn í 5.-7. bekk.

Námskeiðið er þrjú skipti, tveir tímar í senn með pásu á milli, dagana 25. nóvember og 10. og 17. desember frá klukkan 16 til 18.

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Sigurður Snæbjörn Stefánsson.

Í tímunum kynnast þátttakendur undirstöðuatriðum skákar, skákborðinu og helstu skákhugtökum. Farið verður yfir skákbyrjanir, miðtöfl og endatöfl, skákþrautir leystar og þátttakendur læra að skrá skákleiki.

Að lokum verður haldin lítil skákkeppni þar sem þátttakendur fá tækifæri til að nýta það sem þeir hafa lært.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu og ekki þarf að skrá þátttöku fyrirfram.

Námskeiðið er styrkt af Bókasafnasjóði.

Sjá viðburð á Facebook: https://fb.me/e/56whLErJf

Skáknámskeið á Bókasafni Múlaþings Seyðisfirði fyrir börn í 5.-7. bekk

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?