Skáldaþing er ljóðahátíð sem haldin verður í Múlaþingi dagana 20.–31. maí 2026. Skáldaþing á sér stóra systur, Skáldasuð, sem hefur verið haldin þrívegis á Suðurnesjum og er fyrirmynd hátíðarinnar þaðan komin. Nú tengjum við þessar tvær hátíðir saman þvert yfir landið í fyrsta sinn og hlökkum mikið til.
Dagskráin, sem fer fram á Egilsstöðum og Seyðisfirði, verður falleg, lágstemmd og fjölbreytt.
Yfir 50 skáld taka þátt í hátíðinni og meðal þess sem boðið verður upp á er:
Ljóð í leiðinni (ljóð víða í umhverfinu)
Ljóð í lúgunni (kemur ljóð inn um bréfalúguna til þín?)
Ljóð í lauginni (upplestur í sundlaugum Seyðisfjarðar og Egilsstaða)
Ljóð í búningsklefum
Ljóða-myndlistarsýningu eftir nemendur miðstigs Seyðisfjarðarskóla á Vesturvegg í Skaftfell Bistro
Ljóð út á Vestdalseyri - Seyðisfirði
Listsýningu í Sláturhúsinu
Útimyndlistarsýningu
Viðburð í Tvísöng
Hátíðin er haldin í samstarfi við Skaftfell, Sláturhúsið menningarmiðstöð, Þjóðminjasafn Íslands og Tækniminjasafn Austurlands.
Hún er styrkt af Síldarvinnslunni, Menningar-, háskóla- og nýsköpunarráðuneytinu, Bara Snilld, Alcoa og fékk hún einnig menningarstyrk frá Múlaþingi.
Nánnari upplýsingar á Facebook síðu hátíðarinnar.
