Fara í efni

Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa Múlaþings

15. fundur 02. júní 2026 kl. 10:00 - 10:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála

1.Miðbær á Egilsstöðum, uppbygging

Málsnúmer 202308120Vakta málsnúmer

Fyrir liggja lóðablöð fyrir nýjar íbúðarhúsalóðir í miðbæ Egilsstaða. Annars vegar er um að ræða Kaupvang 20, þar sem heimilt er að reisa allt að 14 íbúða fjölbýlishús á þremur hæðum. Hins vegar er um að ræða Sólvang 2?6, þar sem gert er ráð fyrir þremur fjölbýlishúsum, 2?3 hæðar háum, með allt að 59 íbúðum samtals.

Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkti á fundi sínum þann 4. maí 2026 að lóðirnar yrðu auglýstar lausar til úthlutunar í samræmi við lið b) í 3. grein reglna um úthlutun lóða hjá Múlaþingi og hefur það nú verið gert.

2.Umsókn um lóð, Fjóluhvammur 4

Málsnúmer 202412196Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tilkynning frá lóðarhafa Fjóluhvamms 4 í Fellabæ um skil á lóðinni.
Lóðin verður auglýst að nýju laus til úthlutunar.

3.Umsókn um lóð, Bakkavegur 22

Málsnúmer 202504218Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að ekki hefur verið sótt um byggingarleyfi vegna byggingu íbúðarhúss á Bakkavegi 22 á Borgarfirði sem úthlutað var 21. maí 2025.
Með vísan til 5. gr. reglna um úthlutun lóða hjá Múlaþingi er samþykkt að afturkalla úthlutun lóðarinnar og auglýsa hana að nýju lausa til úthlutunar.

Fundi slitið - kl. 10:15.

Getum við bætt efni þessarar síðu?