Fara í efni

Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa Múlaþings

16. fundur 01. júlí 2026 kl. 13:00 - 13:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála

1.Umsókn um lóð, Bláargerði 51-53

Málsnúmer 202603030Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn frá Búðingar ehf. um byggingu 4 íbúða raðhúss á tveimur einbýlishúsalóðum við Bláargerði 51 og 53 á Egilsstöðum. Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkti óverulega breytingu á deiliskipulagi svæðisins til samræmis við fyrirhuguð áform á fundi 8. júní síðast liðinn.
Skipulagsfulltrúi samþykkir fyrirliggjandi umsókn og felur starfsfólki að ganga frá úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.

2.Umsókn um lóð, Bakkavegur 6

Málsnúmer 202603055Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tilkynning frá lóðarhafa Bakkavegar 6 á Borgarfirði um skil á lóðinni.
Umsóknin er samþykkt og verður Bakkavegur 6 færð að nýju á lista yfir lausar lóðir.

3.Umsókn um lóð, Bakkavegur 22

Málsnúmer 202606044Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn frá Davíð Þór Sigurðssyni um byggingarlóðina Bakkavegur 22 á Borgarfriði.
Skipulagsfulltrúi samþykkir fyrirliggjandi umsókn og felur starfsfólki að ganga frá úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.

4.Umsókn um lóð, Hamrar 11

Málsnúmer 202606130Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn frá Kára Sveinbirni Gunnarssyni um byggingarlóðina Hamrar 11 (L210938) á Egilsstöðum.
Skipulagsfulltrúi samþykkir fyrirliggjandi umsókn og felur starfsfólki að ganga frá úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.

5.Umsókn um lóð, Hamrar 10, 700

Málsnúmer 202606171Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn frá Snjófugl ehf. um byggingarlóðina Hamrar 10 (L210933) á Egilsstöðum.
Skipulagsfulltrúi samþykkir fyrirliggjandi umsókn og felur starfsfólki að ganga frá úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.

Fundi slitið - kl. 13:15.

Getum við bætt efni þessarar síðu?