Fara í efni

Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa Múlaþings

17. fundur 01. september 2026 kl. 10:00 - 11:00 á skrifstofu sveitarfélagsins, Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sóley Valdimarsdóttir ritari á umhverfis- og framkvæmdasviði
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar Þjónustufulltrúi skipulagsmála

1.Umsókn um lóð, Bakkavegur 6

Málsnúmer 202607129Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn frá Aldgate eignir ehf. um byggingarlóðina Bakkavegur 6 (L229127) á Borgarfirði.
Skipulagsfulltrúi samþykkir fyrirliggjandi umsókn og felur starfsfólki að ganga frá úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.

2.Umsókn um lóð, Dalsel 1-5, Egilsstaðir

Málsnúmer 202608048Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn frá MVA ehf. um byggingarlóðina Dalsel 1 (L205241) á Egilsstöðum fyrir byggingu fjögurra íbúða raðhúss.
Fyrirhuguð áform eru ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag þar sem er gert ráð fyrir þriggja íbúða raðhúsi á lóðinni.

Skipulagsfulltrúi vísar umsókninni til umfjöllunar hjá umhverfis- og framkvæmdaráði þar sem tekin verður afstaða til breytinga á deiliskipulagi.

3.Umsókn um lóð, Miklaborg, Borgarfjörður eystri

Málsnúmer 202608072Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn frá Hallveigu Karlsdóttur um byggingarlóðina Miklaborg (L237150) á Borgarfirði.
Skipulagsfulltrúi samþykkir fyrirliggjandi umsókn og felur starfsfólki að ganga frá úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.

Fundi slitið - kl. 11:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?