Fara í efni

Umsókn um lóð, Dalsel 1-5, Egilsstaðir

Málsnúmer 202608048

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa Múlaþings - 17. fundur - 01.09.2026

Fyrir liggur umsókn frá MVA ehf. um byggingarlóðina Dalsel 1 (L205241) á Egilsstöðum fyrir byggingu fjögurra íbúða raðhúss.
Fyrirhuguð áform eru ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag þar sem er gert ráð fyrir þriggja íbúða raðhúsi á lóðinni.

Skipulagsfulltrúi vísar umsókninni til umfjöllunar hjá umhverfis- og framkvæmdaráði þar sem tekin verður afstaða til breytinga á deiliskipulagi.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 192. fundur - 14.09.2026

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Í upphafi máls vakti Hólmfríður Rut Einarsdóttir (L-lista), máls á mögulegu vanhæfi sínu og færði rök fyrir því. Formaður bar tillöguna upp til atkvæðagreiðslu og var hún samþykkt samhljóða.
HRE vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu málsins.

Fyrir liggur umsókn frá MVA ehf. um byggingarlóðina Dalsel 1 (L205241) á Egilsstöðum fyrir byggingu fjögurra íbúða raðhúss.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir að MVA ehf. verði veitt vilyrði fyrir lóðinni að Dalseli 1 á meðan unnið verði að breytingu á skipulagi.
Ráðið felur skipulagsfulltrúa að láta vinna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi í samráði við málsaðila. Tillagan verði grenndarkynnt fyrir eigendum eftirfarandi fasteigna: Klettasel 2, 4, 6, 8 og Dalseli 2, 4 og 6.
Jafnframt verði óskað eftir umsögnum frá RARIK og HEF veitum.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?