Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

20. fundur 28. apríl 2021 kl. 12:00 - 13:45 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Gauti Jóhannesson varaformaður
  • Hildur Þórisdóttir aðalmaður
  • Vilhjálmur Jónsson aðalmaður
  • Eyþór Stefánsson aðalmaður
  • Jódís Skúladóttir áheyrnarfulltrúi
  • Þröstur Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Björn Ingimarsson sveitarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason bæjarritari
  • Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Snædal Bragason bæjarritari

1.Ársreikningur 2020

Málsnúmer 202104183Vakta málsnúmer

Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar sátu kynningu á ársreikningi Múlaþings fyrir árið 2020 undir fundi bæjarráðs, en öllum sveitarstjórnarfulltrúum stóð til boða að sitja kynningu endurskoðenda á ársreikningnum sem hófst kl. 12:00.

Eftirtaldir kjörnir fulltrúar sátu kynningu á ársreikningnum:
Berglind Harpa Svavarsdóttir, Jakob Sigurðsson, Gauti Jóhannesson, Stefán Bogi Sveinsson, Þröstur Jónsson, Kristjana Sigurðardóttir, Jódís Skúladóttir, Eyþór Stefánsson,Vilhjálmur Jónsson, Hildur Þórisdóttir og Elvar S. Kristjánsson.

Magnús Jónsson og Sigurjón Örn Arnarsson endurskoðendur KPMG mættu á fundinn og kynntu ársreikning og drög að endurskoðunarskýrslu Múlaþings fyrir árið 2020, ásamt Guðlaugi Sæbjörnssyni fjármálastjóra.
Jafnframt var lagt fram ábyrðar- og skuldbindingaryfirlit í árslok 2020.

Endurskoðendur og fjármálastjóri svöruðu einnig fyrirspurnum fundarmanna varðandi ýmsa þætti ársreikningsins. Að lokinni kynningu var þeim þökkuð koman og greinargóðar upplýsingar.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð samþykkir að vísa ársreikningi og drögum að endurskoðunarskýrslu Múlaþings fyrir árið 2020 til fyrri umræðu í sveitarstjórn. Jafnframt verður ársreikningurinn birtur í Kauphöllinni að lokinni áritun byggðaráðs og sveitarstjóra, eins og reglur segja til um.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Fundi slitið - kl. 13:45.

Getum við bætt efni þessarar síðu?