Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

194. fundur 14. júlí 2026 kl. 08:30 - 10:36 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Jónína Brynjólfsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Guðlaugur Sæbjörnsson starfsmaður
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri, sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2026 til 2029. Viðauki 1

Málsnúmer 202607047Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi tillögu að viðauka 1 sem felur í sér eftirfarandi breytingar á viðkomandi málaflokkum.

A-hluti:
Málaflokkur 22 Hækkun lífeyrisskuldbindingar, 79,4 millj. kr. hækkun gjalda
Málaflokkar 28 og 31 Fjármagnsliðir, 120 millj. kr. hækkun gjalda
Málaflokkur 31 Afskriftir fastafjármuna, 0,3 millj. kr. hækkun gjalda
Málaflokkur 31 Söluhagnaður fastafjármuna, 2,4 millj. kr. hækkun tekna

B-hluti:
Málaflokkur 63 Ríkarðshús, söluhagnaður vegna Miðdals II, 12,3 millj. kr. hækkun tekna
Brunavarnir á Héraði, söluhagnaður bifreiðar, 4,8 millj. kr. hækkun tekna
Fjármagnsliðir, 19 millj. kr. hækkun gjalda
Afskriftir fastafjármuna, 1,7 millj. kr. hækkun gjalda

Fjárfestingahreyfingar:
Slökkvilið Múlaþings, kaup á bíl af Brunavörnum á Héraði, 5 millj. kr.
Slökkvilið Múlaþings, kaup á bíl fyrir Djúpavog, 2,5 millj. kr.
Brunavarnir á Héraði, kaup á Sprinter bíl, 30 millj. kr.
Hafnir Múlaþings, kaup á Mörk 12 og 14, 68 millj. kr.

Sala eigna:
Ríkarðshús, sala á Miðdal II, 37,3 millj. kr.
Brunavarnir á Héraði, sala á Ford bifreið til Múlaþings, 5 millj. kr.
Eignasjóður, sala á 25% áhaldahúss á Borgarfirði, 11,2 millj. kr.

Lántaka:
Eignasjóður, Ofanflóðasjóður, 87 millj. kr.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

3.Staðfesting frá Múlaþingi á stofnframlagi, Brák íbúðafélag hses.

Málsnúmer 202606188Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, dagsett 26. júní 2026, þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á stofnframlagi vegna kaupa Brákar íbúðafélags hses. á tveimur íbúðum, D og E, við Markarland 10. Óskað er eftir upplýsingum um form stofnframlags og sundurliðun á fjárhæð þess.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings staðfestir stofnframlag sveitarfélagsins vegna kaupa Brákar íbúðafélags hses. á tveimur íbúðum, D og E, við Markarland 10, að fjárhæð kr. 11.520.000,-. Sveitarstjóra falið að senda staðfestingu sveitarfélagsins til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Erindi Vegagerðarinnar um viðhald girðinga og lausagöngubann yfir Heiðarendann

Málsnúmer 202605209Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Vegagerðinni um áform stofnunarinnar um að annast og kosta viðhald girðinga á vegkafla Hringvegar frá Urriðavatni að Jökulsá, þar sem óskað er umsagnar sveitarfélagsins samkvæmt 5. málsgrein 52. greinar vegalaga. Inn á fundinn undir þessum lið mætti Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings gerir ekki athugasemdir við áform Vegagerðarinnar um að annast og kosta viðhald girðinga á þessum kafla Hringvegarins, og fagnar því að Vegagerðin stuðli með þessu að auknu öryggi vegfarenda. Byggðaráð bendir þó á að úrbóta er þörf á vegkaflanum til þess að hann geti talist fjárheldur. Byggðaráð felur verkefnastjóra umhverfismála að skila umsögn til Vegagerðarinnar í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Umsagnarbeiðni, umsókn um rannsóknarleyfi á Borgarfirði eystra

Málsnúmer 202607008Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Umhverfis- og orkustofnun, dagsett 1. júlí 2026, vegna umsóknar HEF veitna ehf. um leyfi til rannsóknar og leitar að jarðhita á Borgarfirði eystra. Í beiðninni er sveitarfélaginu, sem landeiganda á fyrirhuguðu rannsóknarsvæði, veittur kostur á að koma á framfæri athugasemdum við umsóknina.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings gerir ekki athugasemdir við umsókn HEF veitna ehf. um leyfi til rannsóknar og leitar að jarðhita vegna þess lands sem umsóknin tekur til og er í eigu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Beiðni um umsögn um geymslustað ökutækja, GO EAST

Málsnúmer 202607040Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Samgöngustofu, dagsett 7. júlí 2026, varðandi geymslustað ökutækja vegna starfsleyfis til reksturs ökutækjaleigu í Fellabæ.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings tekur undir umsögn skipulagsfulltrúa Múlaþings um að umsóknin falli að gildandi skilmálum aðalskipulags en bendir leyfisveitanda á að umsækjandi er ekki skráður lóðarhafi. Byggðaráð felur skipulagsfulltrúa að koma umsögninni til Samgöngustofu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Samráðsgátt. Grænbók, stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga

Málsnúmer 202607037Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá innviðaráðuneytinu, dagsett 6. júlí 2026, þar sem óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélaginu við gerð grænbókar í vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að taka saman upplýsingar frá sveitarfélaginu til innviðaráðuneytisins vegna verkefnisins, og leggja aftur fyrir byggðaráð.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

8.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga, kynningarbréf

Málsnúmer 202607048Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bréf frá stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga til kynningar á starfsemi samtakanna.
Lagt fram til kynningar.

9.Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202607030Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar ársreikningur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga fyrir árið 2025.
Lagt fram til kynningar.

10.Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga

Málsnúmer 202604047Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð aukaaðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga, sem haldinn var 29. apríl 2026, auk samþykkta samtakanna.
Lagt fram til kynningar.

11.Aðalfundur Vísindagarðsins 2026

Málsnúmer 202606065Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð aðalfundar Vísindagarðsins frá 6. júlí 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:36.

Getum við bætt efni þessarar síðu?